My Shows
News on your favorite shows, specials & more!

Leikritið Aðfaranótt frumsýnt

By: May. 25, 2018

Leikritið Aðfaranótt frumsýnt  Image

Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ er nýtt íslenskt leikrit, Aðfaranótt eftir Kristján Þórð Hrafnsson, sem frumsýnt verður 11. maí. Sýnt er í Kassanum í Þjóðleikhúsinu og aðgangur er ókeypis. Fyrirhugaðar eru tíu sýningar.

Leikritið Aðfaranótt bar sigur úr býtum í leikritasamkeppni sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands og Félags leikskálda og handritshöfunda um leikrit fyrir útskriftarárgang leikarabrautar.

Leiðir nokkurra ungra manneskja liggja saman eitt laugardagskvöld á skemmtistað í Reykjavík. Langanir og væntingar, óuppgerð mál, innibyrgð reiði, nýjar og fornar ástir. Glösin fyllast og tæmast, og smám saman bresta hömlurnar. Áður en nóttin er liðin er ein af þessum ólíku manneskjum dáin og önnur með mannslíf á samviskunni. Nærgöngul rannsókn á margvíslegum birtingarmyndum árásargirninnar í samskiptum fólks. Kraftmikið verk um myrkrið og ljósið, fullt af óvæntum, beittum húmor.

Með því að efna til leikritasamkeppni vill sviðslistadeild LHÍ efla íslenska leikritun. Mikilvægt er fyrir leikaraefni að takast á við ný, íslensk verk sem endurspegla samtíma þeirra, og spreyta sig á hlutverkum sem eru skrifuð sérstaklega fyrir þau.

Leikararnir sem útskrifast nú í vor eru þau Árni Beinteinn Árnason, Ebba Katrín Finnsdóttir, Elísabet Skagfjörð, Eygló Hilmarsdóttir, Hákon Jóhannesson, Hlynur Þorsteinsson, Júlí Heiðar Halldórsson og Þórey Birgisdóttir. Gestaleikari frá Þjóðleikhúsinu er Sigurður Þór Óskarsson. Leikstjóri sýningarinnar er Una Þorleifsdóttir. Leikmynd og búninga gerir Rebekka A. Ingimundardóttir, tónlist er eftir Gísla Galdur Þorgeirsson og lýsingu hannar Jóhann Friðrik Ágústsson.

Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ er sýnt í Kassanum í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Aðgangur er ókeypis og hægt er að tryggja sér miða á heimasíðu Þjóðleikhússins eða í miðasölu. Sýndar verðar tíu sýningar frá 11. til 25. maí.


Need more Broadway Theatre News in your life?
Sign up for all the news on the Winter season, discounts & more...


Videos